Twill Skíðabuxur dömu
Vörunúmer: 34W4556 L214 Sky
CMP TWILL – SKÍÐABUXUR FYRIR DÖMUR
CMP Twill eru hlýjar og þægilegar skíðabuxur fyrir konur sem vilja góða vörn og hreyfifrelsi í brekkunum. Buxurnar eru úr slitsterku twill-efni með Clima Protect®-himnu sem veitir 10.000 mm vatnsheldni og góða öndun. Feel Warm Flat einangrunin heldur vel á þér hita án óþarfa fyrirferðar og vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun ásamt límdum saumum veitir aukna vörn gegn snjó og raka.
Helstu eiginleikar:
-
Clima Protect®: Vatnsheld himna með 10.000 mm vatnsheldni og 10.000 MVP öndunargetu
-
Feel Warm Flat: 80 g/m² einangrun sem veitir góða hlýju án óþarfa fyrirferðar
-
Límdir saumar: Allir saumar límdir til að koma í veg fyrir að vatn smjúgi inn
-
Slitsterkt twill-efni: Endingargott pólýesterefni með vatnsfráhrindandi yfirborðsmeðhöndlun
-
Forsniðin hné: Veita aukin þægindi og hreyfifrelsi
-
Stillanlegt mitti: Teygjanlegt mitti með frönskum rennilás fyrir þægilega aðlögun
-
Innri snjógaiterar: Með sílikonáferð sem heldur snjó frá skíðaskónum
-
Slitstyrking neðst á skálmum fyrir aukna endingu
-
Tveir hliðarvasar með vatnsheldum rennilásum


