0
Hlutir Magn Verð

"Strike Angler SOT" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Strike Angler SOT thumb Strike Angler SOT

Strike Angler SOT

269.900kr

Vörunúmer: 10048-124-223 Nature

- +

Forpöntunarverð: 199.900,-
(Venjulegt verð: 269.900,-)

Þessi glæsilegi litur er séríslenskur og ber nafnið Náttúra (eða Nature). Við létum framleiða aðeins fáein eintök af þessum einstaka lit 🤩.

Strike Angler báturinn er fjölskyldu og veiðibátur sem hefur rækilega slegið í gegn á Íslandi! Þessi tiltekni bátur er sá allra stöðugasti af öllum Sit-On-Top bátum á markaðinum vegna hins byltingarkennda tvíbitnulaga kjöl. Á þessum bát þarf því ekki að vera opin vatnsgöt til að auka stöðugleika líkt og hjá flestum öðrum framleiðendum.

Fyrir þá sem hafa hug á veiðar í sjó fylgir frítt öryggis- og róðratækninámskeið í boði GG. Sjá myndbrot frá róðra- og öryggisnámskeið.

Báturinn er vel búinn aukahlutum að staðaldri og eru höldur fyrir þrjár veiðistangir.

Framleiddur í Bretlandi, ríkulega búinn og á góðu verði. Að auki er hægt að fá ankeri til að halda stað þegar búið er að finna fiskitorfurnar.

Islander Strike bátarnirnir eru fyrir alla: stangveiðimenn, skotveiðimenn, fjölskyldufólk, krakka og svo mætti lengi telja. Þessi græja er eitt af því fáa sem sameinar gauragang og ævintýramennsku fyrir fullorðna og frábæra fjölskyldudaga út á sjó eða vötnum.

Tvítbitnulaga kjölurinn gerir kleift að henda bátnum beint á þverboga, tjaldvagn eða kerru með nánast engri fyrirhöfn (án sérstaka festinga). Tvö strappabönd og málið og dautt og báturinn kemur með hvert sem er.

Eiginleikar:

  • Tvíbitnulagakjölur, ótrúlega stöðugur
  • Extra breidd fyrir extra stöðugleika
  • Tvær árafestingar fyrir aftan ræðara
  • Hannaður þannig að það sé hægt að standa eða veiða á hlið
  • Stór og góð lúga
  • Daglúga fyrir framan ræðara með netapoka
  • Mikið geymslupláss að aftan
  • Dekklínur
  • SlideLock ™ stillanleg fótstig
  • Mjög þægilegt fellanlegt sæti
  • Deluxe bakstuðningur
  • Sídren
  • Hliðarhandföng, og árafesting
  • Burðarhandföng
  • D hringir til að festa í
  • Drentappi
  • Hægt að fá anker, GPS og fl. sem aukabúnaður
  • Lengd: 4,06m
  • Breidd: 81cm
  • Þyngd: 34kg
  • Burðargeta: 181kg