Paiyu úlpa
Vörunúmer: 007585 01742 Dusk/Re

Mountain Equipment Paiyu Dúnúlpa herra
Paiyu er einstaklega hlý og tæknileg dúnúlpa fyrir erfiðar vetraraðstæður, fjallamennsku og ferðir þar sem áreiðanleg einangrun skiptir öllu máli. Úlpan sameinar mikla hlýju, lága þyngd og hún pakkast einstaklega vel og hentar því sérstaklega vel í fjallamennsku, vetrarfjallamennsku, ísklifur og lengri ferðir í mjög köldu veðri.
Sérstök tvílaga offset-hólfaskipting úlpunnar dregur verulega úr kuldabrúm og heldur betur á hita en hefðbundin gegnumsaumuð dúnbygging. Innra lag með hitagefandi yfirborði eykur enn frekar varmaeinangrunina án þess að úlpan verði óþarflega fyrirferðarmikil.
Helstu eiginleikar
- Einstaklega hlý og létt dúnúlpa fyrir kaldar vetraraðstæður
- 269 g af 90/10 andadúni í stærð L
- Að lágmarki 700 fill power
- Dúnn vottaður samkvæmt Responsible Down Standard (RDS) og rekjanlegur í gegnum DOWN CODEX®
- DRILITE® Loft 40D ytra efni
- Vindþétt og mjög vatnsfráhrindandi ytra efni
- PFC-frí vatnsfráhrindandi meðhöndlun
- Tvílaga offset-hólfaskipting sem dregur úr kuldabrúm
- Hitagefandi innra lag fyrir aukna varmaeinangrun
- Einangruð og fullstillanleg Mountain hetta sem hentar með eða án hjálms
- Tveggja sleða YKK® rennilás að framan
- 2 renndir handhitunarvasar
- 2 renndir brjóstvasar
- Renndur innri öryggisvasi
- 2 stórir innri netvasar
- Stillanlegir ermastútar
- Tvískipt stillanlegt band í faldi
- Kemur með eigin pakkapoka
- Þyngd: 730 g í stærð L
Efni
- Ytra efni: 100% pólýamíð
- Fóður: 100% pólýamíð
- Einangrun: 90% andadúnn / 10% fiður
- Fill power: að lágmarki 700 cuin
- Dúnn: DOWN CODEX® / RDS-vottaður
DRILITE® Loft
DRILITE® Loft er vatnsfráhrindandi efni frá Mountain Equipment sem er hannað fyrir dún- og einangrunarflíkur. Efnið er með 1500 mm vatnsheldni og heldur vatnsfráhrindandi eiginleikum sínum mun lengur en hefðbundin DWR-meðhöndlun.
Hentar fyrir
Paiyu er fyrir þá sem þurfa mikla hlýju og áreiðanlega vörn í mjög köldum aðstæðum. Hún er sérstaklega hönnuð fyrir fjallamennsku, vetrarfjallamennsku og ísklifur en hentar einnig vel í skíðaferðir, leiðangra og aðrar ferðir þar sem þörf er á öflugri dúnúlpu sem pakkast vel og takmarkar ekki hreyfigetu.
