KEEN Newport
24.990kr
Vörunúmer: 705-1028513 MOlive
Newport er sandalinn sem að kom KEEN á kortið. Lokuð tá sem að verndar tærnar fyrir hnjaski, sólinn nær upp fyrir tærnar með hönnun sem að KEEN hefur fengið einkaleyfi á. Gott grip á sóla, hvort sem er á þurru eða blautu undirlagi. Innleggið mótast eftir fætinum og veitir góðan stuðning. Þetta eru sandalar sem að þú getur notað allan daginn, alla daga, í nánast hvaða aðstæðum sem er.
- Efri partur er úr leðri
- Fóðraðir að ofan með möskvaefni sem að dregur ekki í sig vatn
- Þrýstimótaður EVA miðsóli
- Stýfing undir il úr TBU (hitaþjálu pólýúretani) fyrir aukinn stöðugleika
- Gúmmí á ytri sóla skilur ekki eftir sig strik í gólfefni
- Hrjúfur munstraður sóli, veitir gott grip hvort sem er á blautu eða þurru undirlagi
- Teygju reim yfir rist, auðvelt að herða að og losa
- Lykkjur á hæl og tungu auðvelda þér að klæða þig í og úr
- Metatomical EVA innlegg, sérstaklega hannað til að mótast eftir fætinum og veita góðan stuðning
- Míkrófíber ysta lag á innleggi
- Má þvo í þvottavél
- Þyngd á einum skó: 430,9 gr. (Stærð 42)
- Lítil númer. Flestir taka hálfu númeri stærra en þeir nota vanalega