0
Hlutir Magn Verð

"Mutant 22" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Mutant 22 thumb Mutant 22

Mutant 22

27.990kr

Vörunúmer: 10004558 MOrange

- +

Nú í uppfærðu útliti! Mutant 22 er hin fullkomni félagi með þér í klifrið. Áreiðanlegur, vel skipulagður og vel hannaður poki þar sem vel er hugað að geymslu á búnaði en nú með endingargóðu efni sem er líka vatnsfráhrindandi. Efnið hrindir vel frá sér snjó, góðar hliðarfestingar fyrir skíði og traustar festingar fyrir ísaxir á báðum hliðum pokans. Megin aðgengi í pokann er að ofanverðu í hólf sem opnast og lokast með rennilás. Netavasi í toppnum fyrir geymslu á smáhlutum. Tveir strappar eru framan á pokanum til að geyma búnað og fatnað. 

 Hvort sem þú stundar klettaklifur að sumri til eða ísklifur yfir vetrartímann þá er Mutant traustur og góður ferðafélagi.

  • Hægt er að nota Hydraulics™ og Hydraulics™ LT vatnspoka með Mutant. 
  • Tvöfaldar festingar á framanverðum pokanum gefa möguleika fyrir geymslu búnaðar. 
  • Tvöfaldar ToolLock™ festingar fyrir ísaxir.
  • Festingar sem auðvelt er að opna í hönskum. 
  • Sér hólf fyrir vatnspoka í aðalhólfi. 
  • Festing fyrir lykla að innanverðu. 
  • Strappi að ofan (að innanverðu) til þess að þrýsta saman pokanum.
  • Styrking á botni. 
  • Bak úr efni sem hrindir frá sér snjó og klaka.
  • Aðalefni: bluesign® vottað 210D endurunnið hátækni PFC/PFAS frítt DWR
  • Neyðarflauta á strappa yfir bringu. 
  • Renndur vasi úr netaefni á innanverðu loki. 
  • Festingar fyrir reipi
  • Aðgengi að ofanverðu í gegnum rennilás. 
  • Þyngd: 0.7 kg
  • Stærð: 50 x 28 x 22cm