Metron Airspeed 24
34.990kr
Vörunúmer: 10006620 MBown
24L hjólabakpoki sem hentar þeim sem hjóla daglega í vinnuna, í skólann eða á æfingar í alls kyns aðstæðum. Metron Airspeed 24 hjólabakpokinn frá Osprey er með nútímalega hönnun, endurskin í merkinu og sérhólfi fyrir fartölvur (16"tommu). Pokinn situr vel á þér en AirSpeed™ bakið sér til þess að nægt loftflæði sé um bakið. Frábært innra skipulag með mikið af hólfum svo að hver hlutur á sinn stað. Áföst vatnsheld yfirbreiðsla til að verja gögn og búnað fyrir úrkomu. Bakpokinn er gerður úr bluesign vottuðu endurunnu efni. Frábær hjólabakpoki, sama hvernig viðrar.
- AirSpeed™ net í bakinu, loftar mjög vel um bakið
- Falin LidLock™ festing fyrir hjálm
- Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
- Festing fyrir hjólaljós
- Sér J laga vasi fyrir fatnað að innan
- Fóðraðir vasar fyrir tölvu og spjaldtölvu
- Renndur vasi fyrir sólgeraugu og lítil raftæki til að koma í veg fyrir að þau rispist
- Renndur vasi að framan
- Innbyggð festing fyrir lykla
- Mjög gott innra skipulag
- Sér hólf fyrir pappíra
- Áföst vatnsheld yfirbreiðsla
- Stærð: 24L
- Þyngd: 1,122 kg
- Mesta stærð: (l x b x d): 51 x 33.5 x 25cm
- DWR húðaður og laus við PFC efni.
- Megin efni: bluesign® vottað 100% endurunnið 500D nælon efni