0
Hlutir Magn Verð

"Kestrel 38" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Kestrel 38 thumb Kestrel 38
Kestrel 38 thumb Kestrel 38
Kestrel 38 thumb Kestrel 38
Kestrel 38 thumb Kestrel 38

Kestrel 38

41.990kr

Vörunúmer: 10004767 Blk

stærð
- +

Kestrel 38 nú í uppfærðu útliti. Hannaður sérstaklega sem alhliða göngubakpoki, Kestrel 38 kemur nú með uppfærðu bakkerfi með nýju AirScape™ bakinu sem er með þykkari fyllingu (e. foam) til að fá betri stuðning við bak og mjóbak ásamt að tryggja góða öndun í baki. Nú er hægt að stilla bakið á pokanum án þess að taka pokann af sér. Þegar pokinn er rétt stilltur á þig fer 80% þyngdarinnar á mjaðmirnar og 20% þyngdarinnar á axlirnar. Það þýðir að minni líkur eru á verkjum í öxlum og baki meðan á göngu stendur. Best er að hagræða þyngstu hlutunum sem með eru í för neðst í pokann. Auðvelt aðgengi er að öllu dótinu í pokanum. Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi gera þér kleift að setja göngustafina í og úr sjálf/ur án þess að leggja pokann niður eða biðja vin um hjálp. Vatnsheld yfirbreiðsla kemur að góðum notum í rigningu og blautu veðri. Þú þarft þó ekki að örvænta ef þú lendir í vindhviðum vegna þess að yfirbreiðslan er áföst, enda veitir kannski ekki af hérna á Íslandi.

Kestrel bakpokarnir frá Osprey eru léttir, mjög notendavænir og hlaðnir úthugsuðum smáatriðum sem að gera línuna þá vinsælustu frá Osprey. Osprey Kestrel serían hefur allt sem til þarf fyrir þá sem gera kröfur til alhliða fjallabakpoka. Kestrel 38L er gerður úr endurunnu bluesign® vottuðu efni sem hefur verið meðhöndlað með vatnsfráhrindandi efni (DWR). 

Komdu við í GG Sport og við stillum bakpokann á þig eftir þínum þörfum.

  • Stillanleg hæð á axlarólum svo að pokinn sitji sem best
  • Hægt að stilla bak án þess að taka pokann af sér
  • Nýtt  AirScape™ bak tryggir góða öndun og aukin þægindi
  • Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
  • Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi
  • Festing fyrir ísexi
  • Hliðarvasar úr teygjuefni
  • Renndir vasar á mjaðmaólum
  • Dýnufestingar neðan á pokanum (hægt að taka af)
  • Áföst vatnsheld yfirbreiðsla (hægt að fjarlægja)
  • Netapoki er í topplok þar sem er festing fyrir lykla
  • Vatnspokinn geymist fyrir utan aðalhólfið sem gerir áfyllingu mun auðveldari
  • Innbyggð festing fyrir lykla
  • Auðvelt aðgengi í aðalhólf að ofan og á hlið
  • Þyngd: 1,9 kg
  • Stærð (l x b x d): 79 x 40 x 28 cm
  • Efni: bluesign® vottað endurunnið 420D efni. Efnið hefur verið meðhöndlað með vatnsfráhrindandi efni (DWR), laust við PFAS.