Glissade Stutt Dúnúlpa dömu
69.990kr
Vörunúmer: G80470040 OffW
Glissade dúnúlpan frá Peak Performance er með fallega glansandi áferð og er í stuttu sniði. Lárétt vatteringin er í stærra lagi, sem gefur úlpunni fallegt og nútímalegt yfirbragð. Úlpan er einstaklega hlý og þægileg, með 700 fill power andadúnsfyllingu sem gerir úlpuna einstaklega einangrandi og létta. Glissade dúnúlpan er vatns- og vindheld en andar samt ótrúlega vel.
Hettan á úlpunni er áföst og passar yfir skíðahjálminn. Snúrugöng eru með teygju í mittið svo hægt er að þrengja snið úlpunnar eftir hentisemi.
Á úlpunni er renndur vasi fyrir skíðapassann, renndur vasi að innan og faldir renndir vasar á hliðum.
Glissade dúnúlpan er í "slim fit" sniði og kemur í stærðum XS-XL.
Þyngd: 740g


