Glace langermabolur með hettu
12.990kr
Vörunúmer: 006023 02239 Mist
Glace langermabolur í herrasniði frá Mountain Equipment.
Léttur og fljótþornandi langermabolur sem hentar frábærlega í fjallgöngur, klifur og æfingar í hlýrra veðri.
Bolurinn verndar húðina gegn sólargeislum og hægt er að nota bolinn einann og sér eða sem undirlag undir hlýrri fatnað. Fjölbreytt og þægileg flík sem þú getur verið í á löngum dögum úti við.
Bolurinn er aðsniðinn (e. slim fit) og er með flötum saumum á mjúku efninu. Hettan hentar vel yfir hjálm.
Í efninu er innbyggt HeiQ lyktarmildandi kerfi, sem gerir það að verkum að þú getur notað bolinn lengi og hann helst ferskur og þægilegur.
Þvottaleiðbeiningar: Má þvo á 30°C og hengja til þerris.
Þyngd: 180g

