Fusion S1 hlaupajakki
18.990kr
15.192kr
Vörunúmer: 0018 SurfB
Fusion S1 hlaupajakkinn er búinn til úr vind- og vatnsheldu efni sem er ótrúlega létt og andar vel. Jakkinn er í þægilegu sniði og heldur þér í skjóli frá veðri og vindum á meðan þú hleypur.
Þú getur notað jakkann í útihlaup allt árið um kring, það eina sem breytist er hvernig þú klæðir þig undir jakkanum.
Efnið innan á kraga jakkans er mjúkt og hrindir frá sér svita.
Á jakkanum er sterkbyggður YKK-rennilás og renndur vasi framan á brjósti, en bakhlið vasans er teygjanleg, svo að vasinn lagar sig að innihaldi vasans (t.d. sími eða kort).
Fyrirferðarlitlar 3M endurskinsrendur á ermum og framan og aftan á öxlum tryggja það að þú sést vel ef þú hleypur í myrkri.
