0
Hlutir Magn Verð

"Fairview 40" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Fairview 40 thumb Fairview 40
Fairview 40 thumb Fairview 40
Fairview 40 thumb Fairview 40
Fairview 40 thumb Fairview 40
Fairview 40 thumb Fairview 40
Fairview 40 thumb Fairview 40

Fairview 40

36.990kr

Vörunúmer: 10007375 CBlueT

- +

Nú í uppfærðu útliti og með stillanlegu baki! oFairview bakpokinn er dömuútgáfa af Farpoint pokanum vinsæla sem mun koma sér vel í hvaða ferðalagi sem er. Fairview 40 er í raun ferðataska og bakpoki sameinuð í frábæran ferðafélaga og er að auki  léttasta ferðataskan frá Osprey sem einnig er hægt að nota sem bakpoka.  Bakpokinn er gerður með bluesign® vottuðu endurunnu efni. Góðar axlar- og mjaðmaólar auk sterkrar burðargrindar gera þér kleift að bera dótið þitt þægilega á milli staða. Aðalhólfið opnast alveg með rennilás líkt og á ferðatösku, skipulag verður því leikur einn.

Bið eftir farangri heyrir sögunni til með þessum netta 40 lítra poka sem má koma með þér sem handfarangur í flug skv. reglum EU. Við mælum með að kynna sér reglur hvers og eins flugfélags um stærð sem má taka með í handfarangri. 

Fairview hefur tvímælalaust sannað gildi sitt meðal heimsreisufara.

  • Fóðraðar axla- og mjaðmaólar með góðri öndun sem hægt er að loka af í renndu hólfi, allt eftir því hvort verið er að bera pokann á bakinu eða nota hann sem ferðatösku
  • Þægilegt burðakerfi
  • Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
  • Tvö hólf, annað fyrir smáhluti og stórt aðalhólf fyrir farangur
  • Fóðraðir vasar fyrir fartölvu og spjaldtölvu í aðalhólfi
  • Ólar í farangurshólfi til að halda búnaði á sínum stað 
  • Renndur netavasi innan á framhlið á aðalhólfi
  • Léttur burðarrammi
  • Fóðrað handfang á hlið og ofan á pokanum sem að lítið fer fyrir
  • Opnast mjög vel, framhliðin er rennd í U svo að auðvelt er að raða í pokann
  • Læsanlegir rennilásar á aðalhólfi
  • Hliðarólar til að þjappa pokanum saman
  • Hægt að taka með sem handfarangur í flug skv. EU reglum um hámarkstærð handfarangurs
  • Stillanlegt bak 
    • Lengd baks: 38-47cm
  • Þyngd: 1,5 kg
  • Stærð: 55cm x 35cm x 23cm