Down Sock dúnsokkar
Vörunúmer: 76402778413

Þægilegir dúnsokkar sem eru einstaklega hlýir og henta vel fyrir kaldar nætur, hvort sem er í útilegunni, ferðalaginu eða jafnvel heima við. Henta vel til notkunar samhliða svefnpokanum til þess að halda enn betur hlýju á fótum og fyrir aukna slökun. Einstaklega léttir og meðfærilegir og pakkast saman í lítið sem ekkert.
Aðskilin dúnfyllt hólf eru í sokkunum og þeim er skipt niður með þeim hætti að engin köld svæði sitja eftir. Sérstaklega hannað tásvæði að innanverðu tryggir góða vernd og hlýju fyrir viðkvæmar tærnar. Innri teygjanlegur strappi fyrir hælinn ásamt teygjanleika í stroffi tryggja að sokkarnir falla vel að, sem skilar sér í auknum þægindum. Mjúkt ytra efnið er laust við PFC efni og eingöngu RDS vottaður dúnn er notaður í fyllinguna. Vandaðir dúnsokkar sem koma sér svo sannarlega vel í kuldanum og þegar þú vilt gera vel við fætur og tær.
- Efni: 700+ cuin/oz evrópskur andadúnn (EN 90 / 10). 30D Nylon
- RDS vottaður dúnn
- Oeko-Tex® 100 vottað
- Laust við PFAS efni