0
Hlutir Magn Verð

"Aether Plus 70" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Aether Plus 70 thumb Aether Plus 70
Aether Plus 70 thumb Aether Plus 70

Aether Plus 70

75.990kr

Vörunúmer: 100028 Black

stærð
- +

Aether Plus er 70 lítra fjallgöngupoki fyrir karlmenn sem hentar vel allan ársins hring. Hvort sem leiðin liggur í nokkra daga göngu eða í krefjandi útivistar ferð þá er Aether Plus pokinn sem uppfyllir þarfir þeirra sem vilja sterkan poka. Aether Plus 70 hentar vel í regni, snjó eða sól og mun auðvelda ferðalag eigandans til muna.

Þegar pokinn er rétt stilltur á þig fer 80% þyngdarinnar á mjaðmirnar og 20% þyngdarinnar á axlirnar. Það þýðir að minni líkur eru á verkjum í öxlum og baki meðan á göngu stendur. Best er að hagræða þyngstu hlutunum sem með eru í för neðst í pokann. Auðvelt aðgengi er að öllu dótinu í pokanum þar sem að þú getur opnað hann á þrjá vegu, þ.e. að ofan, fyrir miðju og að neðan. Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi gera þér kleift að setja göngustafina í og úr sjálf án þess að leggja pokann niður eða biðja vin um hjálp. 

  • Frábær 70 lítra fjallgöngupoki
  • Vatnsheld yfirbreiðsla
  • Dýnufestingar neðst á pokanum
  • Airscape™ bak sem tryggir góða öndun og aukin þægindi
  • Stillanleg brjóstól að framan með áfastri neyðarflautu
  • Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi, hægt að festa rækilega að ofan og neðan
  • Tvær ísaxafestingar bæði að ofan og að neðan, allt er því vel fest niður til að hámarka bæði öryggi og þægindi. 
  • Frábært aðgengi að öllum búnaði pokans: að neðan, að ofan og fyrir miðju. 
  • Djúpir og góðir hliðarvasar úr teygjuefni, öðru megin er strappi sem hægt er að þrengja
  • Vasi að framan tilvalinn fyrir smáhluti sem gott er að lofta um, t.d. sokka.
  • Topphólf sem hægt er að fjarlægja og nota sem dagpoka
  • Netapoki er í topploki þar sem er festing fyrir lykla
  • Endurskin í merkingum
  • Áföst regnslá
  • Mjaðmaól pokans er með strekkingu báðum megin, pokinn situr því vel og smellan er fyrir miðju (aukin þægindi)
  • Góðir vasar á mjaðmabelti
  • Þyngd: 2,6 kg
  • Stærð: (l x b x d): 75 cm x 38 cm x 34 cm


Tengdar vörur

75.990kr
Ariel Plus 70 Black
59.990kr
Hayatsuki GTX