Vislight GoreTex Skelbuxur
89.990kr
Vörunúmer: G80467040 DelV

Vislight GORE-TEX C-Knit™ skíðaskelbuxurnar eru hannaðar til þess að ráða við öll þau vetrarævintýri sem þú leggur upp í.
Sterkt og endingargott þriggja laga GORE-TEX C-Knit™ efnið er algjörlega vind- og vatnshelt en er um leið með góða öndun. Þær henta því vel í öll átök í hvaða veðri sem er.
Á buxunum eru YKK AquaGuard® vatnsþéttir rennilásar og í mittinu eru stillanleg bönd með frönskum rennilás og á stroffinu við fæturna er auka styrking á álagssvæðum (e. snow gaiters). Frábærar skelbuxur sem að búa yfir allri þeirri hágæða virkni sem má búast við frá Peak Performance. Tilvaldar fyrir skíðaferðina eða í göngur.
- Þriggja laga Gore-Tex® C-KNIT™ efni
- Vatnsheldni: 28.000mm
- Öndun: RET<6m2
- Vindheldnar
- Vatnsheldar
- Límdir saumar
- Snið: Regular
- Snjóhlíf að innanverðu við stroff
- Loftgat á hliðum fyrir auka öndun
- Gerðar fyrir skíðamennsku og vetraríþróttir
- YKK AquaGuard® vatnsþéttir rennilásar
- PFC laust vatnsfráhrindandi efni
- Styrking á álagssvæðum
- Stillanlegt band í mitti
- RECCO® Rescue tækni
- Tveir renndir útvíðir vasar á lærum
- Renndur vasi öðru megin
- Þyngd: 0,72 kg



