Ultra Pillow L
9.490kr
Vörunúmer: 7640423641638 GreyG

Ultra Pillow L er eins og nafnið gefur til kynna, sérstaklega léttur ferðakoddi og er auk þess fyrirferðarlítill og þægilegur í ferðalögin.
Í þessum kodda má finna frábært jafnvægi á milli þæginda og þyngdar. Koddinn pakkast vel saman, passar í allan farangur og hentar þér, hvort sem þú ert á leið í fjallgöngu, hjólaferð, í útilegu eða langar einfaldlega að halla höfði annars staðar en heima við.
Koddinn er lagaður eftir höfðinu og slakar þannig á hálsinum í hvíld.
Það er fljótlegt að blása koddann upp með ventlunum á koddanum, en auðvelt er að stilla hæð og stífni með því að sleppa úr honum lofti eftir smekk.
Efnið í koddanum er mjúkt endurunnið pólýester efni. Band er á koddanum þannig að hægt er að festa hann við uppblásna dýnu.
Stærð: 46 x 30 x 12cm
Þyngd: 50g
Með koddanum fylgir geymslu-/ferðapoki
Pökkuð stærð: 12 x 5cm
