Ultra 8R LW dýna
52.990kr
Vörunúmer: 7640423641423

Ultra 8R ferðadýnan frá EXPED er einstaklega létt dýna með aukinni hitaeinangrun.
Dýnan hentar fyrir einn.
Dýnan er búin SYNMAT PLUS TECHNOLOGY™ fyrir aukna hlýju og pakkast saman í fyrirferðalítinn poka.
Mikil hitaeinangrun og þægindi í fisléttri dýnu sem pakkast smátt - Ultra 8R dýnan var hönnuð fyrir krefjandi ævintýri í köldu loftslagi.
Frábær ferðafélagi í bakpokaferðalagið, langar fjallgöngur og fjallaferðir að vetri til, en dýnan hentar einnig kulsæknum útilegumönnum.
Í dýnunni er endurunnin míkrófíber fylling með auka lagi af reflective foil.
Efnið í dýnunni er endurunnið bluesign® vottað ripstop pólýester - sem er 3x sterkara en hefðbundið efni í léttum dýnum.
Á dýnunni eru tvennir flatir stútar (e. valves) sem gerir það að verkum að auðvelt og fljótlegt er bæði að blása dýnuna upp og tæma úr henni loftið.
Schnozzel pumpupoki fylgir með - svo að þú getur blásið dýnuna fljótt upp og án þess að blæstrinum fylgi raki sem fer inn í dýnuna þína.
R-Value (ASTM) - 8.8
Kuldaþol: -40°C
Fjögurra árstíða dýna
Þyngd: 735g
Þykkt: 9cm
Breidd: 65cm
Lengd: 197cm
Pökkuð stærð: 27x13.5cm
Innifalið í pakkningu:
Dýna, geymslupoki, schnozzel pumpa, viðgerðarsett
