Ultra 6.5R LW dýna
47.990kr
Vörunúmer: 7640423641379

Ultra 6.5R - fislétt fjögurra árstíða ferðadýna - sem smellpassar í og á bakpokann.
Létt dýna sem pakkast smátt og stenst kröfur EXPED fyrir lágmarks einangrun fyrir dýnur sem hægt er að nota allt árið um kring.
Dýna fyrir einn.
Í dýnunni er hið framúrstefnulega SYNMAT PLUS TECHNOLOGY™ og dýnan er fyllt með endurunninni míkrófíber fyllingu með aukreitis lagi af reflective foil. Þetta hámkarkar hitaeinangrun dýnunnar um leið og dýnan er létt, fyrirferðarlítil og þægileg.
Efnið í dýnunni er endurunnið bluesign® vottað ripstop pólýester - sem er 3x sterkara en hefðbundið efni í léttum dýnum.
Á dýnunni eru tvennir flatir stútar (e. valves) sem gerir það að verkum að auðvelt og fljótlegt er bæði að blása dýnuna upp og tæma úr henni loftið.
Schnozzel pumpupoki fylgir með - svo að þú getur blásið dýnuna fljótt upp og án þess að blæstrinum fylgi raki sem fer inn í dýnuna þína.
R-Value (ASTM) - 6.9
Þyngd: 590g
Þykkt: 9cm
Breidd: 65cm
Lengd: 197cm
Ummál í pakkningu: 27 x 12cm
Innifalið í pakkningu:
Dýna, geymslupoki, schnozzel pumpa, viðgerðarsett
