Treriksröset Shiny Crystal/Photochromic
26.990kr
Vörunúmer: TRIS001-008

Treriksröset sportsólgleraugun frá Tripoint eru hönnuð fyrir jaðaríþróttir og annað sem krefst þess að þú sért á miklum hraða og í átökum. Gleraugun henta sérstaklega vel í fjallahjólreiðar, götuhjólreiðar, útihlaup, náttúruhlaup og á skíði, en þau eru um leið nógu flott til þess að þú kemst upp með að nota þau líka dagsdaglega.
Stílhrein og klassísk hönnun með "wrap-around" linsu sem veitir góða vörn gegn vindi og trjágreinum og öðru sem þú gætir rekist á á fullri ferð.
Linsan í gleraugunum er biobased Nylon linsa sem bætir nákvæmni útsýnisins og frammistöðu þinnar. Linsan verndar 100% gegn UV geislum.
Treriksröset eru framleidd úr 45% lífrænu polyamide efni sem búið er til úr castor olíu.
Gleraugun eru "hydrophobic" og "oleophobic" sem þýðir að öruggt er að vatn, olía og óhreinindi perlist af linsunum.
Hægt er að skipta um linsur í gleraugunum.
Linsa: Cat. 0-3
Ummál: B138 x 110mm x 60mm
