Transporter Gear Tote 60L
19.990kr
Vörunúmer: 10006490
Transporter Gear Tote er 60L búnaðartaska frá Osprey. Taskan stendur sjálf og er opin sem gerir það einstaklega þægilegt að pakka í hana. Taskan er búin til úr ótrúlega sterku og vatnsheldu NanoTough™ efni sem auðvelt er að þrífa eftir ævintýri dagsins. Þú getur haft töskuna á öxlinni eða haldið á henni í höndinni með meðfylgjandi axlaról og handföngum. Með töskunni fylgir motta sem ætluð er til þess að nota á meðan þú skiptir um skó, en hún nýtist einnig sem lok á töskuna eða til þess að styrkja botninn enn frekar.
Stærð: 60L
Ummál: H36 x B62 x D42 cm
Þyngd: 870g
Sterkleg bygging töskunnar heldur sér þegar þú leggur hana frá þér
Stór renndur vasi að framan
Netavasi að innanverðu

