Transporter™ Duffel 30
Vörunúmer: 10006365 RBlk
Transporter 30L búnaðartaska frá Osprey sem hentar þér frábærlega ef þú vilt aukin þægindi í ferðalögum, þú getur smellt þessari á bakið þegar slíkt hentar betur. Taskan er sterk og hönnuð til þess að þola ýmis konar hnjask sem oft fylgir ferðalögum. Taskan er tilvalin fyrir ferðalög þar sem þú getur tekið hana með þér í handfarangur. Transporter er létt og mjúk viðkomu en samt sem áður sterk og endingargóð. Taskan er gerð úr 100% endurunnu sterkbyggðu bluesign vottuðu nælon efni ásamt því að vera með ripstop efni hindrar að ef gat kemur á pokann að rifan verði lengri. Taskan er einnig gerð úr vatnsfráhrindandi NanoTough™ efni að utanverðu. Gott aðgengi er í aðalhólf töskunnar og gott innra skipulag. Fáanlegar í stærðum 30L, 40L, 65L, 95L, 120L og 150L.
- Hægt að taka með sem handfarangur í flug skv. EU reglum um hámarks stærð handfarangurs
- 30 lítra ferðataska
- Sterkt efni sem hrindir vel frá sér vatni
- Kemur í litlum poka sem hægt er að festa inn í töskunni fyrir auka geymslu
- Léttari en áður
- Fóðraðar axlarólar sem hægt er að geyma í hólfi á ofanverðri töskunni
- Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
- Hægt að smella þægilegri ól á töskuna til þess að bera á annari öxlinni, t.d. ef þú ert með bakpoka á bakinu.
- Smærri ólar í innanverðri töskunni til þess að þrengja yfir farangur, svo allt sé á sínum stað
- Fjögur haldföng eru á töskunni, eitt á hverri hlið
- Hægt að fjarlægja axlarólar
- Lítið rennt hólf efst á tösku
- Lykkjur á hliðum til að festa tösku með karabínum
- Lítið rennt hólf neðst á tösku (að innanverðu)
- Lykla festing inn í efra hólfi
- Gott aðgengi að farangri með stórum U-laga rennilás
- Hægt að setja lás á rennilása (lás fylgir ekki)
- Hlífðarkantur yfir rennilás
- Sterkbyggður botn
- Efni: bluesign vottað 630D NanoTough™ efni, 100% endurunnið nælon efni með ripstop áferð og carbonate húðun.
- Botninn er gerður úr bluesign vottað 840D NanoTough™ efni, 100% endurunnið nælon efni með ripstop áferð og carbonate húðun
- Þyngd: 0.89 kg
- Stærð: 48cm x 30cm x 31 cm