Coleman MACKENZIE 4
Vörunúmer: C-2000033761
Fjögurra manna tjald með tveimur aðskildum svefnrýmum sem hægt er að sameina í eitt, og alrými með góðri lofthæð. Tjaldið er fljótlegt og auðvelt í uppsetningu. Coleman tjöldin eru frábær fyrir íslenskar aðstæður. Þau eru sterkbyggð, vatnsheld gæðatjöld og eru öll búin sérstakri Blackout Bedroom filmu sem útilokar 99% af sólarljósi inn í svefnrými sem hjálpar til við að ná lengri og betri svefni á björtum, íslenskum sumarnóttum. UV-Guard tæknin í filmunni veitir SPF50 sólarvörn sem hjálpar jafnframt við hitatemprun inni í tjaldinu, þannig að ekki verði molla í morgunsólinni og einnig er hlýrra í kulda heldur en í öðrum tjöldum. Coleman tjöldin eru þau einu á markaðnum með þessa filmu. Þá eru öll tjöldin með high performance flugnaneti sem heldur jafnvel minnstu flugunum frá, sem er hentugt á svæðum þar sem lúsmý er að finna. Í stærri tjöldunum frá Coleman er gert ráð fyrir rafmagnssnúrum og ljósum.
- Fjöldi: 4.
- Herbergi: 2.
- Vatnsheldni: 4500 mm.
- Stangir: Stál.
- Límdir saumar.
- Þyngd: 26,6 kg.
- Pökkunarstærð: 80x40x35 cm.
- Stærð innanrýmis (LxBxH): 15,7 m2.