0
Hlutir Magn Verð

"Snjóbrettapakki - Unglinga" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Snjóbrettapakki - Unglinga thumb Snjóbrettapakki - Unglinga

Snjóbrettapakki - Unglinga

96.970kr
77.576kr
 
K2

Sidecar snjóbretti unglinga

stærð

YOU+H snjóbrettaskór

stærð

Sidecar snjóbrettabindingar barna

stærð
- +

Snjóbrettapakki með öllu sem þarf fyrir unglinginn. Þessi pakki hentar þeim unglingum sem hafa einhverja reynslu af snjóbrettaiðkun.
Í pakkanum er Vandal unglingasnjóbretti, Sonic snjóbrettabindingar og You+H snjóbrettaskór. 
 
K2 Sidecar er fjölhæft all-mountain freestyle-snjóbretti fyrir krakka sem eru að þróa færni sína og vilja bretti sem fylgir þeim áfram þegar færnin eykst. Twin Rocker prófíllinn er flatur milli bindinganna með rocker utan við þær, sem auðveldar beygjur, snúninga og freestyle. Twin-lögun og samhverfur hliðarbogi gefa sömu tilfinningu hvort sem rennt er á hægri eða vinstri fæti.
Sonic snjóbrettabindingin er einföld og þægileg "All mountain" snjóbrettabinding. Hægt er að stilla bindinguna án verkfæra. Á bindingunni er hallastilling og mjúkt undirlag er undir tá og hæl. 
 
You+H snjóbrettaskórnir eru vandaðir og flottir snjóbrettaskór fyrir krakka og unglinga. Þeir eru hannaðir með þægindi og stöðugleika í huga, auk þess sem þægilegt er að fara í og úr skónum. You+H snjóbrettaskórnir eru með "Grows-A-Long" tækni sem gerir það að verkum að skórnir stækka með notandanum þannig að hægt er að fjarlægja hluta af innleggi skóna til þess að koma til móts við stækkandi fætur. Skórnir henta jafnt sem fyrstu brettaskór og fyrir þau sem hafa reynslu af brettaiðkun. Skórnir eru með Youth BOA Fit kerfi og eru fóðraðir með Comfort Foam EVA. Gott grip er á sólanum og núningsvörn er á efsta kanti skóna. 
 

K2 Sidecar Youth – snjóbrettabinding fyrir unglinga

Meiri stjórn, meiri gleði og fleiri ævintýri á snjóbrettinu! K2 Sidecar Youth er vönduð og endingargóð snjóbrettabinding fyrir unga brettakappa sem vilja byggja upp færni og sjálfstraust. Hún sameinar mjúka og leikandi sveigju við góðan stuðning, svo auðveldara sé að læra nýjar hreyfingar og njóta sín á fjallinu.