Skíðapakki fyrir börn - þessi elstu
64.970kr
51.976kr

Skíðapakki fyrir börn og unglinga! Frábær pakki fyrir þau sem eru að ná tökum á skíðamennskunni, hvort sem þetta eru allra fyrstu skíðin eða ný skíði fyrir börn sem hafa smá reynslu á bakinu nú þegar.
Í pakkanum eru Indy 4.5 barnasvigskíði með bindingum, Indy 3 skíðaskór og Sprout stillanlegir barnaskíðastafir.
Indy 4.5 barnasvigskíðin eru tilvalin skíði fyrir unga skíðakappa sem eru að ná tökum á tækninni og vilja hafa gaman um leið. Skíðin eru með þægilegu flexi og auðvelda beygjur og svig. Skíðin eru hönnuð með það í huga að byggja upp sjálfstraust og hjálpa nýjum skíðurum að verða öruggari með sig í snjónum.
Indy 3 skíðaskórnir eru þægilegir og meðfærilegir skíðaskór með þremur smellum. Auðvelt er að fara í þá og úr. Þeir eru fóðraðir með Cushfit Jr. og eru léttir og stílhreinir með mynstri í stíl við Indy skíðin og stafina.
Indy 3 skíðaskórnir eru til í stærðum 23.5 (37.5), 24.5 (39), og 25.5 (40)
Sprout skíðastafirnir frá K2 eru stillanlegir stafir sem vaxa með barninu. Þeir eru stækkanlegir frá 75cm upp í 105cm hæð og eru með þægilegu handfangi og stillanlegum ströppum til að festa stafina utan um úlnliði. Skaftið er úr áli og handfangið er úr endingargóðu gúmmíi.
