Poco Premium barnaburðarpoki
50.990kr
Vörunúmer: 10007630 TidalBlue

Poco Premium barnaburðarpokinn frá Osprey er frábær leið til þess að hvíla litla og þreytta fætur í hvers kyns ævintýrum. Hvort sem leiðin liggur á bæjarrölt, fjallgöngur eða í utanlandsferð, þá getur þú treyst því að það fer vel um barnið í Poco Premium. Ekki skemmir fyrir að burðarpokinn er einnig hannaður til þess að fara vel með bakið á þér.
Poco Premium er með alla þá "fídusa" sem þarf til þess að allir njóti sín utandyra, hvernig sem viðrar.
Stór og rúmgóður aðalvasi með rennilás og rennt geymslupláss undir sætinu.
Stillanlegt AirSpeed bak
Hægt er að taka efnið utan um sæti barnsins af pokanum og þvo eftir þörfum.
Sæti barnins er fóðrað með mjúkum svampi og barnið er fest í burðarpokann með tvöföldu belti yfir axlir
"Fit-on-the-fly" mjaðmabelti sem þú getur stillt hvenær sem er
Renndir vasar á mjöðmum
Sólskyggni með UPF50 yfir sæti barnsins, sem hægt er að draga upp og ganga frá
Stillanleg "ístöð" fyrir fætur barnsins
Aðgengilegur vasi fyrir vatnspoka
Spegill
Tvenn handföng
Ef ætlunin er að ferðast með burðarpokann mælum við með Airporter Large töskunni frá Osprey, en burðarpokinn passar vel ofan í hana.
Stærð: 36L
Ummál: (HxBxD) 75x39x45cm
Þyngd: 3,78kg
Fylgihlutir: Regnyfirbreiðsla og sólskyggni
