MegaMat MW dýna
56.990kr
Vörunúmer: 7640277846395

Megamat MW dýnan frá EXPED - mögulega heimsins þægilegasta sjálfuppblásanlega tjalddýnan!
Láréttir hliðarveggir tryggja mesta mögulega svefnsvæði á dýnunni. Loftgöt í svampinum draga úr þyngd og stærð dýnunnar þegar henni er pakkað saman.
Handhæg og praktísk handföng á hlið dýnunnar.
Megamat dýnan er frábær í grunnbúðirnar, í ferðavagninn eða jafnvel sem gestarúm.
Kjarninn í dýnunni samanstendur a 10cm þykkum svampi með akkúrat réttum stífleika fyrir stuðning og hitaeinangrun.
Áklæði dýnunnar er búið til úr mjúku endurunnu tricot pólýester efni sem er einstaklega þægilegt viðkomu.
MegaMat dýnan blæs sig upp sjálf, en ef þú hefur ákveðnar kröfur um stífleika dýnunnar getur þú einfaldlega notað meðfylgjandi "top up"-pumpu.
Tvennir flatir ventlar gera dýnunni kleift að blása sig upp og fletja sig út fljótt og örugglega.
R-Value (ASTM): 8.1
Kuldaþol: -40°C
Fjögurra árstíða ferðadýna með Thermal comfort
Þyngd: 2070g
Þykkt: 10cm
Breidd: 65cm
Lengd: 183cm
Með í pakkningu: Sidewinder Bag utan um dýnuna, Topup pumpa og viðgerðarsett.
