MegaMat LW
61.990kr
Vörunúmer: 7640277846401 Cypres

Exped MegaMat LW
Exped MegaMat LW er sjálfuppblásin lúxusdýna sem sameinar einstök svefnþægindi, framúrskarandi einangrun og mikinn stuðning. Long Wide (LW) útgáfan er lengri og breiðari en MW og hentar sérstaklega vel fyrir hærra fólk eða þá sem vilja meira pláss til að hreyfa sig í svefni. Með 10 cm þykkum opnum PU-frauðkjarna og 3D hliðum býður MegaMat LW upp á svefnupplifun sem minnir helst á hefðbundna dýnu heima. Hún er frábær kostur fyrir tjaldútilegur, camper-vana, jeppaferðir og sem gestadýna.
Helstu eiginleikar
- Sjálfuppblásin lúxusdýna með framúrskarandi svefnþægindum
- Long Wide (LW) stærð veitir meira pláss fyrir hærri einstaklinga og þá sem vilja breiðari dýnu - en dýnan er 197cm að lengd
- 10 cm þykkur opinn PU-frauðkjarni veitir framúrskarandi stuðning og einangrun
- 3D hliðar skapa jafna og rúmgóða svefnflöt frá kanti til kants
- Mjúkt yfirborð úr endurunnu tricot-pólýester er notalegt viðkomu
- Loftrásir í frauðinu draga úr þyngd og pakkastærð án þess að skerða þægindi
- Tvö FlatValve lok gera uppblástur og lofttæmingu hraða og einfalda
- Top-Up Pumpa fylgir til að fínstilla loftmagn og stífleika
- Burðarhandföng á hlið auðvelda flutning
- Sidewinder™ geymslupoki og viðgerðarsett fylgja með
- Framleidd úr endurunnum efnum og án viljandi viðbættra PFAS-efna.
Tæknilegar upplýsingar
- Stærð: LW (Long Wide)
- Mál: 197 × 65 × 10 cm
- Þyngd: 2.275 kg
- Pakkastærð: 67 × 22 cm
- Þykkt: 10 cm
- R-gildi (ASTM): 8,1
- Árstíðir: 4 árstíðir
- Einangrun: 16 kg/m³ opinn PU-frauðkjarni
- Ytra efni (efra lag): Endurunnið 50D tricot-pólýester með TPU-lagskiptingu
- Botnefni: Endurunnið 75D pólýester með TPU-lagskiptingu
- Uppblástur: Sjálfuppblásin með Top-Up Pump
- Innifalið: Dýna, Top-Up Pump, Sidewinder™ geymslupoki og viðgerðarsett
- Notkun: Tjaldútilegur, camper-vans, jeppaferðir, grunnbúðir og sem einstaklega þægileg gestadýna.
