Maroon HIPE® 2L Skíðaskeljakki herra
Vörunúmer: G80505080 Ttan
PEAK PERFORMANCE MAROON SKÍÐASKELJAKKI HERRA – HLÝR OG VATNSHELDUR SKÍÐAJAKKI FYRIR KREFJANDI VETRARVEÐUR
Vandaður og tæknilegur skíðajakki sem sameinar góða einangrun, veðurvörn og hreyfifrelsi. Maroon Insulated er úr HIPE® 2-way stretch efni sem veitir áreiðanlega vörn gegn vindi og vatni en tryggir jafnframt góða öndun. Hlý gervieinangrun úr endurunnu pólýester heldur á þér hita án þess að gera jakkann þungan eða fyrirferðarmikinn. Teygjanlegt efni, forsniðnar ermar og vel útfærð smáatriði tryggja þægindi og góða hreyfigetu í brekkunum. Frábær skíðajakki fyrir þá sem vilja áreiðanlega veðurvörn og hlýju á löngum dögum á fjöllum.
Helstu eiginleikar:
-
HIPE® 2-way stretch – vatns- og vindheld himna með góðri öndun.
-
Vatnsheldni: 10.000 mm.
-
Öndun: 10.000 g/m²/24 klst.
-
Hlý 80 g/m² gervieinangrun á bol og ermum og 60 g/m² í hettu.
-
Ytra efni, fóður og einangrun úr 100% endurunnu pólýester.
-
Fullteipaðir saumar fyrir aukna vatnsheldni.
-
Tvíátta teygja og forsniðnar ermar fyrir gott hreyfifrelsi.
-
Rennilásaloftun undir ermum til að stjórna líkamshita.
-
Stillanleg hetta sem passar yfir skíðahjálm, en hægt er að taka hettuna af
-
Fast snjóbelti með smellufestingu fyrir skíðabuxur.
-
YKK AquaGuard® rennilás að framan.
-
Stillanlegt ermastroff og faldur.
-
Rennilásavasar að framan, brjóstvasi, innri vasar og sérstakur skíðapassavasi.
-
Gleraugnaklútur fylgir.
-
PFAS-laus vatnsfráhrindandi meðhöndlun.

