0
Hlutir Magn Verð

"Kola Angler PFD" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Kola Angler PFD thumb Kola Angler PFD

Kola Angler PFD

37.990kr

Vörunúmer: 12716-312 JetGrey

 
Palm
stærð
Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Björgunarvesti fyrir kajakveiðimenn með háu baki fyrir aukin þægindi. Vestið er með háu baki og góðri loftun á neðra baki, sem veitir betri þægindi þegar setið er í kajaknum. Geymdu nánast allt sem þú þarft fyrir veiðitúrinn með frábæru skipulagshólfunum sem finna má á Kola Angler vestunum! Tveir stórir vasar eru að framan með frábæru innra skipulagi fyrir öngla, girni og allt sem þarf til að ná þeim stóra! Einnig má finna sérhólf á framanverðu vestinu til að geyma klippur. Á öðrum vasanum er lítill renndur vasi fyrir aukahluti og á axlarólunum má finna nokkrar búnaðarlykkjur sem gott er að festa hluti í. Auðvelt er að komast í vestið sem er með rennilás að framanverðu og smellu undir. Frábært vesti fyrir kajakveiðimenn!

  • Einfaldur, sterkur rennilás
  • Hátt bak fyrir aukin þægindi
  • Tvö rennd hólf að framan
  • Hægt að þrengja að eftir þörfum í mitti, góð festing
  • Efni: Nylon 420D ripstop 
  • Slitsterkt og endingargott
  • Innri skipulagshólf á vösunum að framan
  • Búnaðarlykkjur á nokkrum stöðum til að hengja á
  • Hólf að framan til að geyma klippur
  • Beint snið
  • Endurskin er á vestinu
  • Stillanlegar axlarólar
  • Hægt að stilla og þrengja á hliðum
  • Þyngd: 847g (M/L) 
  • Stærðir: XS/S (40 N), M/L (45 N), XL/2XL (50 N)
  • EN ISO 12402-5