0
Hlutir Magn Verð

"Khimera" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Khimera thumb Khimera

Khimera

52.990kr
26.495kr

Vörunúmer: SHE00069 White

 
KASK
stærð
Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

KASK KIMERA hjálmurinn mótast af nútímalegri og framúrstefnulegri hönnun. Mött og glansandi skelin undirstrikar framangreint en hjálmurinn býr yfir einstöku loftflæði og sjálfmótun. Vönduð ventlun tryggir jafnt og þægilegt flæði sem aðskilur kælingu og móðufráhrindandi flæði, sem þýðir meiri þægindi samhliða notkun hjálmsins. Fóðringin er fljótþornandi þar sem hún nýtir sér gegnustreymið sem hannað er í hjálminum (e. quick-dry soft-wind liner) og skilar hámarks þægindum jafnvel í mjög krefjandi aðstæðum. Það er auðveldlega hægt að fjarlægja fóðringuna (e. liner) með sérstökum hnappafestingum. Ekki nóg með það heldur er KASK með einkaleyfi á sjálfmótandi fóðringu sem tryggir þægindi sem á enga sína líka.

FULLKOMIN SAMÞÆTTING
KASK hjálmarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega með KOO skíðagleraugum.

SKÍÐAGLERAUGNAFESTING
KIMERA hjálmurinn hefur innbyggða festingu fyrir skíðagleraugu

INNBYGGT LOFTFLÆÐI
Tryggir þeim sem notar hjálminn hámarks þægindi í brekkunum þar sem kalt loft fer í gegnum raufar að ofanverðu en heitt loft í gegnum útblástursraufar án þess að vera berskjaldaður fyrir veðri og vindum.
Sérstakt loftop er á hjálminum framanverðum og passar það fullkomlega við loftunargötin á KOO Enigma gleraugunum sem tryggir því lágmarksmóðusöfnun.

EINFÖLD SKILVIRK SMELLA
Þægindin eru kórónuð með einfaldri og auðstillanlegri smellu undir höku sem virkar jafnvel þó maður sé í hönskum.

SMELLANLEG FÓÐRING
Besta lausnin felst í losanlegri fóðringu þar sem auðvelt er að losa og þvo eftir þörfum. Smellurnar sjá um að fóðringin falla vel inn að skelinni og einfalt að losa og festa.

SJÁLFMÓTUN
KIMERA hefur algert snilldar kerfi sem sjálfmótar hjáminn eftir höfuðlaginu. Þetta tryggir að hjálmurinn verður þéttur og góður, fullkomlega sniðinn.

VENTLUN (SOFT WIND)
Hámarksöndun og bakteríudrepandi efni er hluti af fóðringunni. Tryggir fullkomið jafnvægi í hitastigi.

  • Þyngd: frá 500 gr. (stærð M)
  • Stillanleg loftun
  • Fjarlægjanleg fóðring
  • Festing fyrir skíðagleraugu
  • Staðlar: EN 1077 Class B, ASTM F 2040
  • Hannaður og framleiddur á Ítalíu