The Tech Machine (Total Ice)
49.990kr
Vörunúmer: PIMACTEC.TSV

49 cm löng ísexi frá GRIVEL sérstaklega hönnuð með ísklifur í huga. Skaftið er bogið sem auðveldar klifur í bratta. Gat er á hausnum og neðst á handfangi. Gúmmíkantur er neðst á skaftinu, sem gefur gott grip. Sterk ísexi sem gefur góða sveiflu.
- Fyrir ísklifur,
- Lengd: 49 cm
- Þyngd: 635 gr
- Blað: Hitaþrykkt (hot forged)
- Auka grip er á skaftinu
- Skaftið er bogið til þess að auðvelda þér sveifluna
- Sterk og vönduð
- Gat er neðst á skafti, hægt að festa karabínu/spotta
- Sérstaklega endingargóð og kröftug ísexi