Helios II klifurbelti
29.990kr
Vörunúmer: 749470071410 LLava

Helios klifurbeltið frá Edelrid er þægilegt og vandað klifurbelti sem hægt er að nota í ýmis klifurævintýri.
Edelrid leggur áherslu á þægindi við hönnun Helios beltanna, en mjaðmabeltið og fótalykkjurnar eru mótaðar með 3D-mótum og eru fóðraðar með mjúkum svampi.
Áhersla er lögð á að hafa mikla fóðrun og mýkt á svæðum þar sem það skiptir virkilega máli, til dæmis er sérstaklega vel fóðrað á hliðum mjaðmabeltis og minna við baksvæði.
Beltið er í svokölluðu fiðrildasniði og dreifir þyngdinni á ákjósanlegasta hátt.
Helios beltið er létt og pakkast vel saman.

