HeliDrop kastleikur
15.490kr
Vörunúmer: 10003177
HeliDrop kastleikurinn er tilvalinn með í útileguna, sumarbústaðinn eða bara út í garð í sumar!
Þjálfaðu kastfærni, einbeitingu og slepptu keppnisskapinu lausu í þessum einfalda en skemmtilega leik.
Leikreglur eru einfaldar: Ef leikmenn eru fleiri en 3 er skipt í tvö lið. Leikmenn standa ~3m frá skotmarki.
Þú tekur baunapoka, miðar og kastar í gult net (3 stig), bleikt net (2 stig) eða blátt net (1 stig) - hver leikmaður/hvert lið kastar öllum þrem baunapokum í hverri umferð. Fyrsti leikmaður sem kemst upp í 21 stig vinnur. En hafa ber í huga að leikmenn/lið verða að vinna með amk 2 stiga mun.
HeliDrop leikurinn er léttur og tekur lítið pláss - vegur 700g og er 40.5 x 10 x 7cm þegar honum er pakkað saman.
