HeliDisk - frisbíleikur
19.490kr
Vörunúmer: 10003175
HeliDisc frisbíleikurinn er skemmtilegur leikur sem pakkast vel saman í tösku og er tilvalinn með í útilegur, garðpartý og aðrar samkomur undir berum himni.
Leikurinn gengur út á að fella "target" mótherjans, sem komið er fyrir á þar til gerðu statífi, með því að kasta í það frisbídisk.
Leikreglur:
Ef leikmenn eru fleiri en 2 er skipt í 2 lið. Markmið leiksins er að fella target mótherja af turni/statífi með því að kasta meðfylgjandi frisbídiski.
Það eru 3 leiðir fyrir liðin til þess að safna stigum:
- 1: Strike - Diskurinn fer í turninn án þess að velta targetinu.
- 2. Direct hit - Diskurinn hittir turninn eða targetið beint og það fellur til jarðar án þess að spilarar liðsins nái að grípa.
- 3. HeliHit: Mótherjar grípa target eftir direct hit og áður en það fellur til jarðar.
Stigateljari er á stönginni hjá báðum liðum svo hægt sé að fylgjast með stigafjölda.
Það lið sem fyrst nær direct hit eftir að hafa náð 21 stigi vinnur leikinn.
Hæð: Samsett: 145cm/pakkað 10cm
Lengd: Samsett: 40cm/pakkað: 41cm
Breidd: Samsett: 40cm/24cm
Þyngd: Samsett: 1447g/pakkað: 1814g
