G10 LT Wide jöklabroddar
Vara væntanleg
Vörunúmer: RAG10WLT.NME

G10 LT Wide jöklabroddar frá Grivel.
Léttir og liprir 10 punkta stálbroddar fyrir göngur á jöklum og í klassískum fjallgöngum.
10 punkta uppbyggingin veitir þér stöðugleika og getuna til þess að ganga örugglega áfram í ís og snjó. Dregur úr mótstöðu og veitir aukin þægindi á göngu.
LT týpan er léttari en hefðbundnir G10 broddar en eru um leið endingargóðir og sterkir.
Wide týpan er með breiðari bindingu að framan fyrir stærri og breiðari gönguskó, snjóbrettaskó.
Efni: Stál rammi með antibott snjóplötum að framan og aftan
Skóstærðir: 35-46
Þyngd: 800g (parið)

