0
Hlutir Magn Verð

"Vinsæli pakkinn" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Vinsæli pakkinn thumb Vinsæli pakkinn
Vinsæli pakkinn thumb Vinsæli pakkinn

Vinsæli pakkinn

121.960kr
85.372kr
 
Madshus

Active Pro 25/26

stærð

Endurace C

stærð

Active Pro Pole 25/26

stærð
- +

"Þessi vinsæli" gönguskíðapakkinn frá Madshus er tilvalinn fyrir gönguskíðafólk sem hefur einhverja reynslu undir belti í gönguskíðaíþróttinni - en gæti einnig hentað kröfuhörðum og metnaðarfullum byrjendum. 
Í pakkanum eru Active Pro 25/26 skinnskíði með performance classic bindingum, Endurace C gönguskíðaskór og Active Pro Pole 25/26 gönguskíðastafir. 
 
 
Active Pro 25/26 brautaskíðin eru sérstaklega hönnuð fyrir göngur og þjálfun á þjöppuðum brautum. Active Pro gönguskíðin eru með áföstu skinni úr polyamide sem hannað er sérstaklega til þess að hámarka árangur þinn á brautinni og ýta undir góða tilfinningu fyrir skíðunum. Skinnið veitir þér betra grip án þess þó að draga úr rennsli. 
Þetta þýðir að þú getur heldur notað tímann í að skíða frekar en að verja tíma í að bera á skíðin.
Active Pro gönguskíðin eru frábær valkostur jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna í gönguskíðasportinu. 
Stærðir: 182cm, 187cm, 192cm, 202cm og 207cm
Líkamsþyngd skíðafólks: 50-60kg, 60-75kg, 55-70kg, 65-80kg, 70-85kg, 80-95kg og 95-105kg
ATH hafið endilega samband við starfsfólk GG Sport ef einhver vafi leikur á því hvaða stærð/þyngd skíða myndi henta þér best - verslun@ggsport.is
 
Active Pro Pole 25/26 gönguskíðastafirnir eru vandaðir og léttir stafir, gerðir úr 40% carbon. Stafirnir eru 87g/m hvor og eru með góðum handföngum sem auðvelt er að smeygja sér í og úr og passa þægilega í hendi. Oddurinn á stöfunum er 9mm og hægt er að skipta bullunum út eftir þörfum. 
 
Endurace C gönguskíðaskórnir frá Madshus henta vel í hefðbundna skíðagöngu - en þeir eru í senn léttir og þægilegir. Skórnir opnast vel með rennilás að ofanverðu sem gerir skóna aðgengilega og þægilega að klæðast í og úr. 
Mælt er með því að velja Endurace C skóna í einu skónúmeri stærra en notað er í venjulegum skóm. 
Endurace C eru stöðugir og eru búnir svokölluðu "RevoWrap" reimamynstri sem heldur fætinum á sínum stað og kemur í veg fyrir að þú farir á flakk inni í skónum með tilheyrandi óþægindum og núningi.