Madshus Endurace pakkinn
137.960kr
96.572kr

Fossavatnsgönguskíðapakkinn er sérvalinn af skíðagörpum GG Sport fyrir skíðafólk sem hefur nokkra reynslu af skíðum og hentar sérstaklega vel í langar göngur og keppni eins og hina víðfrægu Fossavatnsgöngu, sem allir gönguskíðakappar ættu að þekkja.
Þessi pakki fær topp meðmæli frá okkar gönguskíðaköppum!
Madshus Endurace 25/26 gönguskíðin eru létt og góð skinnskíði sem henta vel fyrir æfingar og langar helgargöngur á brautunum. Skíðin eru með léttum kjarna sem dregur verulega úr þyngd skíðanna ásamt því að auka viðbragðsgetu - sem saman vinna að því að gera skíðaupplifunina þína sem allra besta. Á Endurace gönguskíðunum eru endingargóðar offset brúnir sem hannaðar eru með hámarks stjórn og stöðugleika í huga. Skíðin eru með áreiðanlegt og gott grip í öllum aðstæðum, þökk sé hinum sérstaka skinnskíða camber prófíl og innbyggðu polyamide skinni.
Stærðir: 182/55-70kg, 187/50-65kg, 192/55-70kg, 192/65-80kg, 192/75-90kg, 197/60-75kg, 202/70-85kg
Aldur/kyn: Fullorðins/unisex
Sidecut: 43-44-44
Koma með Performance Classic bindingum
Endurace Pole 25/26 gönguskíðastafirnir eru léttari og stífari en áður, en skaftið er úr 70% kolefni. Stafirnir koma með mótuðum handföngum úr korki sem falla vel í lófa og eru með gott grip og stillanlegar ólar. TBS® snjókörfunum er auðvelt að smella af án þess að nota tæki og tól, svo þú getur verið undirbúin/n fyrir alls kyns aðstæður.
Þyngd: 85g
Handföng og strappi: Madshus Race
Endurace C gönguskíðaskórnir frá Madshus henta vel í hefðbundna skíðagöngu - en þeir eru í senn léttir og þægilegir. Skórnir opnast vel með rennilás að ofanverðu sem gerir skóna aðgengilega og þægilega að klæðast í og úr.
Mælt er með því að velja Endurace C skóna í einu skónúmeri stærra en notað er í venjulegum skóm.
Endurace C eru stöðugir og eru búnir svokölluðu "RevoWrap" reimamynstri sem heldur fætinum á sínum stað og kemur í veg fyrir að þú farir á flakk inni í skónum með tilheyrandi óþægindum og núningi.
