Fairview 70
43.990kr
Vörunúmer: 10007382 Blk
Osprey Fairview 70L ferðabakpoki - hentar þeim sem eru að ferðast langt og vilja ferðast létt. Farpoint bakpokinn er blanda af öllu því besta sem ferðabakpokar þurfa að hafa. Efnið í bakpokanum andar vel, hægt er að stilla bakpokann á margvíslegan hátt svo að hann passi sem best á bakið á þér. LightWire rammi í pokanum dregur þyngd bakpokans í burði.
Góðir rennilásar, utanáliggjandi vasi fyrir snyrtivörur og vasi fyrir fartölvu. Og síðast en alls ekki síst - framan á bakpokanum er minni dagpoki sem hægt er að taka af og nota í styttri ferðir.
Aðrir eiginleikar bakpokans:
- Hægt er að stilla lengd baks bakpokans svo að hann passi þér sem best
- Dagpokinn sem fylgir með er leyfilegur sem handfarangur hjá flestum flugfélögum - svo að þú getur tékkað aðalbakpokann inn og tekið dagpokann með sem handfarangur.
- Hægt er að læsa rennilásum á aðalhólfi
- Fóðruð handföng á toppi og á hliðum
- Hægt er að fela eða ganga frá axlarólum, brjóstbandi og mittisbeltis með því að renna rennilás
- LightWire ramminn flytur burðarþyngd frá axlarólum til mittisbeltis, sem gerir burðinn auðveldari
- Fartölvuvasi sem rúmar fartölvur allt að 16"
- Passar við Farpoint/Fairview Travel Daypack (seldur sér)
* Farpoint bakpokinn er hannaður sem "karlabakpoki" og Fairview er sami bakpoki "fyrir konur" - en samkvæmt áralangri reynslu okkar af sölu þessara bakpoka skiptir lengd baks þess sem kemur til með að nota bakpokann höfuðmáli. Ef þú ert hávaxin/n eða með langan efri búk, þá er Farpoint góður valkostur, en fyrir lágvaxnari einstaklinga gæti Fairview verið betri kostur.
Burðarþol: 7-16kg
Stærð: 70L
Ummál: H66 x B38 x D46 cm
Þyngd: 2kg

