Duro 1.5 hlaupavesti m/flösku
24.990kr
Vörunúmer: 10007322 Blk

Osprey Duro™ 1.5 er létt og tæknilegt hlaupavesti sem er hannað fyrir hlaup, fjallahlaup og aðrar úthaldsíþróttir þar sem hraði og þægindi skipta máli. Vestið situr þétt og stöðugt á líkamanum án þess að hindra hreyfingar og kemur með tveimur 500 ml Hydraulics™ Soft Flasks, svo vökvinn er alltaf innan seilingar. Fjölmargir teygju- og rennilásavasar gera þér kleift að hafa næringu, síma og annan nauðsynlegan búnað við höndina.
Helstu eiginleikar
- 1,5 L geymslurými – tilvalið fyrir hlaup og fjallahlaup
- Tvær Hydraulics™ 500 ml Soft Flasks fylgja með
- Létt og stöðug vestishönnun sem hreyfist með líkamanum
- 360° teygjanlegt AirMesh bakstykki fyrir góða öndun og þægindi
- Tvennar stillanlegia teygjubrjóstólar
- Fjölmargir teygjuvasar fyrir orkugel, næringu og annan smábúnað
- Rennilásavasi að framan fyrir síma eða verðmæti
- Aftari vasi sem rúmar létta jakka eða vatnsblöðru
- Samhæft við Hydraulics™ LT 1,5 L vatnsblöðru (fylgir ekki)
- Stow-on-the-Go™ festing fyrir hlaupastafi
- Endurskin fyrir aukinn sýnileika
- bluesign® vottað efni úr endurunnum efnum með PFAS-frírri vatnsfráhrindandi meðhöndlun (DWR)
Tæknilegar upplýsingar
- Rúmtak: 1,5 L
- Þyngd: 0,20 kg (S), 0,21 kg (M), 0,22 kg (L)
- Mál (M): 42 × 38 × 3 cm
- Innifalið: 2 × 500 ml Hydraulics™ Soft Flasks
- Stærðir: S, M og L
