Dura 6.5R Duo LW
73.990kr
Vörunúmer: 7640423641539

Dura 6.5R Duo dýnan frá EXPED er sterk, endingargóð og létt fjögurra árstíða ferðadýna fyrir tvo.
Dýnan er búin SYNMAT PLUS TECHNOLOGY™ fyrir aukinn hita.
Stöðugur svefnstaður fyrir einn-tvo.
Dura 6.5R Duo dýnan er tilvalin í hin ýmsu ævintýri með þér, þar sem loftslag er kaldara.
Dýnan veitir afbragðs vörn frá kaldri jörð, er með mikið núningsþol og býður upp á mikil þægindi.
Dýnan er með tveimur sjálfstæðum helmingum sem gera það að verkum að þú verður ekki eins var við hreyfingar dýnufélagans á meðan þú sefur.
Dýnan er fyllt með endurunnu míkrófíber efni með auka lagi af reflective foil.
Efnið utan um dýnuna er bluesign® vottað og er mjúkt viðkomu en um leið mjög sterkt.
Dýnuna er auðvelt og fljótlegt að blása upp með meðfylgjandi Schnozzel-pumpupoka og eins er einfalt að tæma dýnuna af lofti og pakka henni saman.
R-Value (ASTM) - 6.9
Fjögurra árstíða dýna
Þyngd: 1585g
Þykkt: 8cm
Breidd: 130cm
Lengd: 197cm
Fyrir 1-2
Pökkuð stærð: 30x16.5cm
Í pakkanum er: dýna, geymslupoki, Schnozzel pumpupoki og viðgerðarsett.
