Dozer 2D
12.990kr
9.093kr
Vörunúmer: 23F6003 Blue

Miðstærð af snjóflóðaskóflu frá BCA með D laga handfangi, þægilegra fyrir þykkari vettlinga.Tilvalin fyrir skíða- og snjóbrettafólk sem vill áreiðanlega snjóflóðaskóflu sem er létt, meðfærileg en auðveld í notkun.
Allar nýju Dozer skóflurnar frá BCA koma með lengjanlegu skafti og sterkbyggðu skóflublaði sem er þægilegt að stíga á. Skóflurnar eru með ¾ af blaðinu slétt, sem auðveldar til muna að gera veggi í snjóinn. Flöt brún efst á blaðinu gerir það þægilegra að stíga á blaðið og leggja alla líkamsþyngdina á skófluna til að grafa. Smellupinni heldur skaftinu á sínum stað þegar þú dregur það út. Skóflan liggur flöt í pokanum þínum til að spara pláss.
Allar snjóflóðaskóflur frá BCA uppfylla UIAA fyrir snjóflóðabúnað.
- Skaft: Ál (6061 T6)
- D handfang
- Lengjanlegt skaft
- Stærð skóflublaðs: 25x29 cm
- Lengd (stækkanleg): 79cm
- Þyngd: 705gr