Classic 750 svefnpoki dömu Long
94.990kr
Vörunúmer: 008577 02279

Classic 750 svefnpoki í dömusniði, lengri útgáfan.
Rúmgóður og þægilegur svefnpoki sem hentar fyrir þá sem ferðast lengra út í óbyggðir og vilja svefnpoka sem ræður við mikinn kulda af og til. Classic svefnpokinn pakkast sérlega vel og hentar því vel í fjallgöngur og ferðalög þar sem máli skiptir að ferðast létt og fyrirferðarlítið.
Dúnhelt efni og hallandi fóðursaumur tryggja góða öndun og að 700fill dúnninn haldist á sínum stað og myndi ekki köld svæði á meðan þú sefur. Á svefnpokanum er góð hetta með dragbandi sem hjálpar til við að halda hitanum inni í svefnpokanum.
Svefnpokinn er "LZ" eða left zipped - þ.e. rennilásinn er vinstra megin á svefnpokanum þegar legið er í honum. Það virðist henta rétthentum einstaklingum vel.
Long svefnpokinn hentar einstaklingum allt að 185cm á hæð
Þyngd: 1390g
Good Night's Sleep hitastig: -12°C
Einangrun: 789g GRS vottaður dúnn með minnst 700 fill power
Temperature ratings (EN13537/ISO23537):
- Comfort: -5°C
- Comfort limit: -12°C
- Extreme: -32°C
Samanpökkuð stærð:
29 x 23 x 20 cm
