Classic 550 svefnpoki dömu
72.990kr
Vörunúmer: 008573 02279 Allium

Classic 550 svefnpoki í dömusniði.
Rúmgóður og þægilegur þriggja árstíða svefnpoki. Classic svefnpokinn pakkast sérlega vel og hentar því vel í fjallgöngur og ferðalög þar sem máli skiptir að ferðast létt og fyrirferðarlítið.
Dúnhelt efni og hallandi fóðursaumur tryggja góða öndun og að 700fill dúnninn haldist á sínum stað og myndi ekki köld svæði á meðan þú sefur. Á svefnpokanum er góð hetta með dragbandi sem hjálpar til við að halda hitanum inni í svefnpokanum.
Svefnpokinn er "LZ" eða left zipped - þ.e. rennilásinn er vinstra megin á svefnpokanum þegar legið er í honum. Það virðist henta rétthentum einstaklingum vel.
Svefnpokinn hentar einstaklingum allt að 170cm á hæð. Hærri einstaklingar ættu að velja Long svefnpoka.
Þyngd: 1150g
Good Night's Sleep hitastig: -6°C
Einangrun: 544g GRS vottaður dúnn með minnst 700 fill power
Temperature ratings (EN13537/ISO23537):
- Comfort: 0°C
- Comfort limit: -6°C
- Extreme: -23°C
Samanpökkuð stærð:
22 x 19 x 16 cm
