0
Hlutir Magn Verð

"Float 42L snjóflóðabakpoki" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Float 42L snjóflóðabakpoki thumb Float 42L snjóflóðabakpoki
Float 42L snjóflóðabakpoki thumb Float 42L snjóflóðabakpoki
Float 42L snjóflóðabakpoki thumb Float 42L snjóflóðabakpoki

Float 42L snjóflóðabakpoki

99.990kr

Vörunúmer: 23C0003.1.1

 
BCA
- +

Float 42 snjóflóðabakpokinn er sterkbyggðasti pokinn frá BCA, hannaður sérstaklega fyrir björgunarsveitarfólk, skíðaleiðsögumenn eða alla þá sem eru að fara í langar ferðir að vetralagi. Hann býr til flot sem hjálpar við að fleyta þér upp á yfirborðið í snjóflóði, 150 lítra blaðran minnkar ekki einungis dýptina á þér í flóðinu heldur ver hún höfuðið og hálsinn gegn áverkum í flóðinu.

Float 42 snjóflóðapokinn er mjög þægilegur og rúmgóður. Hann auðveldar þér að bera björgunarbúnaðinn, nesti, vatn og aukaföt. Allir BCA Float pokarnir eru með vatnshólfi, mótuðu baki fyrir aukin þægindi og renndum vösum á axlarólum (annar fyrir talstöðina og hinn fyrir afhleypingargikkinn)

Áfyllingarstaðir BCA í heiminum eru um 200 talsins sem gerir kerfið það auðveldasta áfyllingarkerfið á markaðnum. Nauðsynlegt er að kaupa Float 2.0 flöskuna aukalega en hún fylgir ekki með pokanum.

Float snjóflóðapokinn tryggir ekki að þú komist lífs af úr snjóflóði. Aflaðu þér þekkingar, taktu góðar ákvarðanir og vertu viss áður en þú leggur af stað.

 

  • Stærð: 42 lítrar
  • Þyngd: 3.215 gr. (allt kerfið með fullri flösku), 2.658 gr. (allt kerfið án flösku), 1.998 gr. (bara pokinn)
  • Hentar baklengd á bilinu 45.7 cm upp í 53.3 cm
  • Vatnspokahólf
  • Skíðafestingar 
  • Snjóbrettafestingar
  • Hæðar stillanleg mittisól
  • Klofól
  • Sérhólf fyrir skóflu og snjóflóðastöng (blauthólf)
  • Hjálmfesting (hægt að fjarlægja)
  • Renndur vasi á mittisól
  • Ísaxarfesting
  • Opnanlegt inn í stóra hólfið í gegnum bakið