0
Hlutir Magn Verð

"Float 32L snjóflóðabakpoki" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Float 32L snjóflóðabakpoki thumb Float 32L snjóflóðabakpoki
Float 32L snjóflóðabakpoki thumb Float 32L snjóflóðabakpoki

Float 32L snjóflóðabakpoki

89.990kr

Vörunúmer: 23E0002.1 Blk

 
BCA
- +

BCA Float 32 snjóflóðabakpokinn er hannaður fyrir þá sem stunda fjallaskíði eða eru á vélsleðum. Hann býr til flot sem hjálpar við að fleyta þér upp á yfirborðið í snjóflóði, 150 lítra blaðran minnkar ekki einungis dýptina á þér í flóðinu heldur ver hún höfuðið og hálsinn gegn áverkum í flóðinu.

Float 32 er mjög rúmgóður, þægilegur og léttur. Hann auðveldar þér að bera björgunarbúnaðinn, nesti, vatn og aukaföt. Allir BCA Float pokarnir eru með vatnshólfi, mótuðu baki fyrir aukin þægindi og renndum vösum á axlarólum (annar fyrir talstöðina og hinn fyrir afhleypingargikkinn)

Áfyllingarstaðir BCA í heiminum eru um 200 talsins sem gerir kerfið það auðveldasta áfyllingarkerfið á markaðnum. Nauðsynlegt er að kaupa Float 2.0 flöskuna aukalega en hún fylgir ekki með pokanum.

Float snjóflóðapokinn tryggir ekki að þú komist lífs af úr snjóflóði. Aflaðu þér þekkingar, taktu góðar ákvarðanir og vertu viss áður en þú leggur af stað.

  • Stærð: 32 lítrar
  • Litur: Warning Red
  • Þyngd: 2.942 gr. (allt kerfið með fullri flösku), 2.366 gr. (allt kerfið án flösku), 1.704 gr. (bara pokinn)
  • Hentar baklengd á bilinu 44.4 cm upp í 52.1 cm
  • Vatnspokahólf
  • Skíðafestingar 
  • Snjóbrettafestingar
  • Hæðar stillanleg mittisól
  • Búnaðalykkjur á mittisól
  • Strappar til að þrengja pokann
  • Klofól
  • Innri grind
  • Ólar til að færa þyngdina nær bakinu
  • Sérhólf fyrir skóflu og snjóflóðastöng (blauthólf)
  • Hjálmfesting (hægt að fjarlægja)
  • Renndur vasi á mittisól
  • Ísaxarfesting
  • Flísfóðraður vasi fyrir skíðagleraugu