Airedale 6.0S Air uppblásið tjald
Vörunúmer: ORFT2210
Hágæða uppblásið 6 manna tjald– frábært fjölskyldutjald í útilegurnar í sumar!
Fljótlegt og einfalt í uppsetningu, endingargott og þægilegt í notkun.
Airedale 5.0S fjölskyldutjaldið er hannað fyrir fjölskyldur og samferðafólk sem vill hafa nóg pláss, þægindi og góða vörn gegn veðri og vindum á sínum ferðalögum.
Efnið í tjaldinu er hið nýstárlega ‘TENSILE PRO’ Ripstop Eco efni – sem gerir það einstaklega endingargott og efnið andar vel, um leið og það býður upp á 6000mm Hydrostatic Head vatnsheldni.
Uppblásni ramminn sem heldur tjaldinu uppi (Oxygen Air Frame system) er með Dynamic Speed Valves og Intelligent Frame Relief Valve – sem tryggir að tjaldið er fljótlegt að blása upp og stöðugur þrýstingur helst.
Tjaldið samanstendur af tvennum svefnrýmum, og rúmgóðu aðalrými. Svefnrýmum er hægt er að skipta í þrennt með 2/3 rennilás. Í svefnrýmum er ’Mid-Nite’ Micro polyester efni sem heldur dagsbirtu og ljósi úti, sem hentar frábærlega á íslenskum sumarnóttum.
Með tjaldinu fylgir pumpa, tjaldbotn (e. footprint), tjaldhælasett og burðar/geymslupoki.
Hæð: 215cm
Grunnflötur: 510 x 380cm
Þyngd: 42kg
Pökkuð stærð: 86 x 62 x 54cm
Tími sem tekur að tjalda: 10mín (m.v. 2 manneskjur)
