Airedale 5.0S Air uppblásið tjald
Vörunúmer: ORFT2200
Hágæða uppblásið tjald fyrir allt að fimm manns – frábært fjölskyldutjald í útilegurnar í sumar!
Fljótlegt og einfalt í uppsetningu, endingargott og þægilegt í notkun.
Airedale 5.0S fjölskyldutjaldið er hannað fyrir fjölskyldur og samferðafólk sem vill hafa nóg pláss, þægindi og góða vörn gegn veðri og vindum á sínum ferðalögum.
Efnið í tjaldinu er hið nýstárlega ‘TENSILE PRO’ Ripstop Eco efni – sem gerir það einstaklega endingargott og efnið andar vel, um leið og það býður upp á 6000mm Hydrostatic Head vatnsheldni.
Uppblásni ramminn sem heldur tjaldinu uppi (Oxygen Air Frame system) er með Dynamic Speed Valves og Intelligent Frame Relief Valve – sem tryggir að tjaldið er fljótlegt að blása upp og stöðugur þrýstingur helst.
Tjaldið samanstendur af tvennum rýmum, svefnrými sem hægt er að skipta í tvennt með 2/3 rennilás og svo er rúmgott aðalrými. Í svefnrými er ’Mid-Nite’ Micro polyester efni sem heldur dagsbirtu og ljósi úti, sem hentar frábærlega á íslenskum sumarnóttum.
Með tjaldinu fylgir pumpa, tjaldbotn (e. footprint), tjaldhælasett og burðar/geymslupoki.
Hæð: 210cm
Grunnflötur: 510 x 340cm
Þyngd: 32.26kg
Pökkuð stærð: 82 x 53 x 48cm
Tími sem tekur að tjalda: 10mín (m.v. 2 manneskjur)
