Aequilibrium ST GTX gönguskór
57.990kr
Vörunúmer: ZFMS098K00Y00 BlkYel
Aequilibrium LT GTX fjallagönguskórnir frá La Sportiva eru hannaðir til þess að mæta kröfum göngufólks og veita frábært jafnvægi á milli tæknilegrar frammistöðu og þæginda.
Aequilibrium LT GTX henta best í tæknilegar sem og hefðbundnar fjallgöngur, þar sem þeir veita frábæran stuðning, gríðarleg þægindi og auðvelda þér göngur á krefjandi undirlagi. Frábærir skór fyrir þá sem vilja létta og endingargóða gönguskó sem vernda fæturna í öllum aðstæðum.
Á skónum er Double Heel™ tækni sem auðveldar göngu í halla niður á við og dregur úr vöðvaþreytu á löngum göngum.
Aequilibrium LT GTX eru frábær valkostur fyrir fjallafólk sem vill geta gengið hratt og örugglega án þess að fórna til þess þægindum eða frammistöðu.
Vatnsheld himna: GORE-TEX Performance Comfort
Lasting Board: Nylonstyrkt trefjagler
Fóðrun: GORE-TEX Performance Comfort
Miðsóli: Enginn
Sóli: Vibram sóli með SpringLug Tech og Impact Brake System™
Efri hluti: Nubuk og núningsþolið efni
3D Flex System Evo™ og mótaður ökkli með TPU lagi til verndar, sem gerir það að verkum að skórinn veitir betri stuðning og fullkominn hreyfanleika ökklans.
Hægt er að nota "semi automatic" brodda með skónum.
