150 Headlamp höfuðljós
Vörunúmer: NEB-HLP-7000-G
Hér er á ferðinni fyrirferðalítið höfuðljós sem er þægilegt í notkun. Höfuðljósið nýtir COB LED tækni, en þá eru margir samsettir ljósgjafar sem saman gefa sterka og góða birtu.
COB LED ljósið gefur frá sér hvítan 150 lumen ljósgeisla í mesta styrk en einnig er hægt að stilla á blikkljós eða lægri ljósstyrk.
Ljósið er hannað með það í huga að gefa góðan sýnileika á nærsvæði notandans með breiðum ljósgeisla sem lýsir upp jaðarsjón í allt að 19m svæði.
Notkun er einföld og auðveld þökk sé takka framan á ljósinu. Í hvert skipti sem þrýst er á takkann færist ljósstyrkurinn á milli þeirra valmöguleika sem í boði eru.
Þrjár ljósastillingar eru í boði:
High (150 lumens): 12klst/19metra fjarlægð
Low (40 lumens): 24klst/10metra fjarlægð
Strobe (150 lumens): 24klst/19m fjarlægð
- Styrkur: Allt að 150 lumens
- Ljósastillingar: High, low, strobe
- LED: Hvítt COB LED
- Rafhlöður: 3x AAA
- Þægilegt höfuðband
- Litur: Svartur
- Efni: Þolmikið ABS
- Ryk- og vatnsvarið (IPX4 vottun)
- Inniheldur: Nebo 150 Headlamp höfuðljós, 3x AAA rafhlöður, leiðbeiningar