Twill Skíðabuxur
Vara væntanleg
Vörunúmer: 33W1157 L573 RoyalBl
Twill herra skíðabuxurnar eru með Feel Warm fóðrun sem halda neðri hlutanum heitum og góðum, jafnvel í köldum og blautum aðstæðum. Buxurnar eru vatnsheldar og anda vel, en allir saumar að utanverðu eru einnig límdir til þess að hámarka vatnsheldni.
Á buxunum eru mótuð hné til að tryggja að buxurnar passi skíðamanninum sem best.
Faldur skálmanna er styrktur sérstaklega og er núningsþolinn ásamt því að snjóstroff er í fóðrinu til þess að koma í veg fyrir að snjór komist inn undir skálmarnar.
Buxurnar eru stillanlegar í mittið með frönskum rennilás og á þeim eru tvennir renndir vasar á hliðum.
- Þyngd: 690gr.
- Lengd: 107cm
- WP: 10.000
- MVP: 10.000
- Clima Protect®
- Þvottaleiðbeiningar: Má þvo á prógrammi fyrir viðkvæman þvott á 30° og setja í þurrkara á mest 60°