SMitten Leather
Vörunúmer: 524300099
SMitten leðurlúffurnar frá Snowlife eru fullkominn valkostur fyrir ævintýrafólk sem kann að meta flott stílbragð, mikið notagildi og umfram allt þægindi! Þessar glæsilegu lúffur eru gerðar úr hágæða efni og veita þér ekki eingöngu góða vörn heldur einnig óviðjafnanlega upplifun utandyra. Ytra byrðið er gert úr þolmiklu kúa leðri og auðvelt er að smeygja sér í og úr þessum veglegu lúffum.
Fyllingin samanstendur af 180gr af Lavalan ull sem tryggir þér þægindi og hlýju auk þess sem hún er sjálfbær og umhverfisvæn. Micro Bemberg fóðrið veitir mikil þægindi og styður við góða rakastjórnun. Stroffið er rifflað og hringur er á lúffunum sem karabínu er krækt í, sem heldur lúffunum saman svo þær týnist síður. Að innanverðu er ól sem tengist við mjúkan strappa sem hægt er að smeygja um úlnliðinn, svo lúffurnar týnist ekki ef þær smeygjast af höndunum sem getur komið sér vel í brekkunni. Allt þetta gerir SMitten lúffurnar að góðum og skynsömum valkosti sem tryggir mikið notagildi. Hvort sem þú sækist í frelsið utan brautar eða ert á höttunum eftir stílhreinum félaga fyrir útiævintýrin þín, þá eru SMitten lúffurnar frábær viðbót í útiveru búnaðinn þinn
- Efni: Kúa leður
- Fylling: Lavalan ull
- Fóður: Micro Bemberg
- Karabína fylgir sem krækir lúffunum saman
- Ól sem smeygist um úlnlið svo týnist síður
- Hlýjar
- Hrinda frá sér raka
- Frábær gjöf